|
|
16.12.2007 07:27:26 / perla265
Þar sem ég sé að þið eruð enn að kíkja eftir síðunni minni, og þakka ég ykkur pent fyrir, þá er önnur síða til sem heitir perla.blog.is Þar hef ég skrifað ýmislegt sem þið viljið kannski skoða. kærar þakkir. Perla Svandís Hilmarsdóttir.
»
28.11.2007 15:42:10 / perla265
...eða ritarinn hætti... Kv. Perla Svandís Hilmarsdóttir.
»
13.11.2007 14:46:54 / perla265
WHY DOGS ARE BETTER THAN MEN! Dogs do not have problems expressing affection in public. Dogs miss you when you're gone. Dogs feel guilt when they've done something wrong. Dogs don't criticize your friends. Dogs admit when they're jealous. Dogs are very direct about wanting to go out. Dogs do not play games with you--except Frisbee (and they never laugh at how you throw). Dogs don't feel threatened by your intelligence. You can train a dog. Dogs are easy to buy for. You are never suspicious of your dog's dreams. The worst social disease you can get from dogs is fleas. (OK. The *really* worst disease you can get from them is rabies, but there's a vaccine for it, and you get to kill the one that gives it to you.) Dogs understand what no means. Dogs understand if some of their friends cannot come inside. Middle-aged dogs don't feel the need to abandon you for a younger owner. Dogs admit it when they're lost. Dogs aren't threatened if you earn more than they do. Dogs mean it when they kiss you.
»
11.11.2007 10:18:19 / perla265
Þá er þessi dagur runninn upp og gærdagurinn orðin að fortíð. Sem betur fer kannski því hann var ekki alveg að ganga upp hjá mér... Hann byrjaði vel að vísu hér í vinnunni en þegar líða fór á daginn þá var ég nú orðin dálítið stressuð. Mig vantaði annan bílstjóra til að taka gámana en Svanur greyið sat sveittur að gera sitt besta. Svo tók mýsla (lyklakippann mín) sig til og týndist. Nú voru góð ráð dýr því ef einhver óæskilegur kæmist í þá þyrfti að skipta út öllu kerfinu En Harpan mín sem vinnur með mér er einstök í öllu því sem hún tekur sér fyrir hendur og fann þá. En á meðan var ég búin að trufla minn yfirstrump hans Stefán en sorry, hann er í Danmörku... Af hverju slökkva yfirstrumpar þá ekki bara á símunum sínum og njóta frísins???? Ég hef aldrei skilið Stefán... Þó svo að hann sé í fiskamerkinu eins og ég... En svo þegar líða fór á kvöldið þá fór þetta nú allt að lagast. Það "trufluðu" okkur 799 bifreiðar en það er bara normal Laugardagur. Það var því gott að komast heim í heitt bað og slaka á fyrir framan sjónvarpið með bjór Núna er nýr dagur komin og vinnan heldur áfram. Harpan er lasin og verður því heima í dag Til hamingju með afmælið, kæri Kristófer Már. (Líklegt að hann lesi þetta )
»
10.11.2007 00:03:23 / perla265
Alveg er það með ólíkindum hvað tíminn getur hlaupið frá manni og þá bara ALLT Í EINU eru bara 44 dagar í pakkana...  Ég er varla búin að fatta að það er komin Nóvember þegar það er farið að tala um laufabrauðabakstur.... Úff... Foreldrar Þórhalls eru væntanleg til landsins næstkomandi miðvikudag og svo á bara að skella sér beint í jóló-ið. Ég verð að vísu að vinna þessi helgi, en svona er þetta bara. Ég verð í rusl-skurð þegar þau eru í lauf-skurði  Ég get allavega glatt mitt litla "ameríska" hjarta á því að það er búið að kaupa eina jólagjöf, en þær verða nú ekki margar þessi jólin. Ég veit nú samt ekki hvað ég geri um þessi jól. Kemur allt í ljós. En á meðan byð ég góðan Guð að geyma þig. Kær kv. Perlan.
»
04.11.2007 23:22:27 / perla265
Jæja. Þá er best að byrja á ferðasögunni þar sem 6 mannverur lögðu af stað þann 18 okt kl. 17:00. til Baltemore. Flugið tók ca 6 tíma. Þar biðum við í 4 tíma eftir framhaldsflugi til international airport í Orlando en flugið á þann stað tók 2 tíma. Flugið þar á milli var alveg með ólíkindum en við flugum með ungu kynslóðinni sem var væntanlega að fara heim í frí frá skóla. Gleðin þar um borð var því mikil. Þegar við vorum komin til Orlando var bílaleigubíll tekin og tók Odda að sér aksturinn að New smyrna þar sem við áttum gistingu í hótel-íbúð. Mér skilst að ameríkanar kalli þetta "Condo" en þetta var uppbúin íbúð með öllu tilheyrandi. Mannskapurinn var orðin þreyttur og var því farið að sofa fljótlega við komuna. Helgin einsog hún lagði sig var eytt í Daytona en þar var festival mótorhjólamannsins í allri sinni dýrð. Núna skil ég hvað Þórhallur átti við þegar hann sagði í fyrra að þetta væri himnaríki mótorhjólamannsins . Það voru allar útgáfur af hjólum þarna. Þegar helginni lauk var farið á mánudegi á Harley Davidson hjólaleigu og 6 stykki af hjólum sótt. Í broddi fylkingar situr maður að nafni Haddi sem stýrði hópnum að Key west. Hann var að vísu dáldið talnavilltur en honum fannst alltaf einn vanta í hópinn. Við leyfðum því Helenu, konu hans að vera með í huganum og eins þegar matast var. Hjólað var eftir sveitavegum en hraðinn á þeim vegum er ekki eins mikill og á hraðbrautunum. Samt fannst mér hraðinn vera alveg nóg fyrir eða 50-60 mílur... Ferðin þangað tók 2 daga. Gistum á góðu hóteli sem fararstjórinn fann fyrir okkur. Vorum komin til Key west 23 okt. Þar beið okkar þvílík svíta sem Oddan var búin að finna fyrir okkur. Það var allt til alls þarna. Á Key west var annað festival alla vikuna. Hundar voru klæddir upp í búninga og mannfólkið líka....sumir voru naktir....Úhúúú.... 25 okt var lagt af stað til baka. Það rigndi á okkur svo til allan daginn en þetta var allt vant hjólafólk sem fór með gát og eiga allir tvo þumla skilið. Við stoppuðum til að borða hjá indjánum og var það alveg stórkostleg sýn. Við fengum að fara bátsferð og var okkur sýnt krókódílar og aðeins inn á þeirra svæði í fenjunum. Það voru allir það hugaðir að fá sér krókódíl og froskalappir nema ég Ekki alveg að kaupa það að borða þess háttar mat....En gott hjá ykkur, ferðafélagar Þið komið mér sífellt á óvart. Héldum síðan ferð okkar áfram og gistum á stað sem heitir Homestead. Enn er Haddi að græða prikin hjá mér. Hann er klókur að finna góð hótel og gaf okkur nokkur ráð þegar við förum aftur út með hóteltrikkin. Daginn eftir lá leiðin síðasta spölin og fór hann með okkur að fallegum stað sem heitir Mount Dora. Þar hittum við íslenska konu sem rekur veitingarhús með systur sinni og gengur hann vel hjá henni. Við lentum líka inná handverksmarkaði sem var flottur. Minnti dáldið á handverksmarkaðinn sem er árlega fyrir norðan á Akureyri. Stemmingin var líka svipaður og þar. 26 okt var svo hjólunum skilað eftir frábæra ferð en því miður þurfti smá hrakför að fylgja með. Odda, sú kjarkaðasta, rann til á hjólinu sem hún var á og marðist illa á lærinu og handlegg . Þetta var sorglegt því kvöldið áður var búið að skála fyrir falllausri ferð en svona getur víst skeð á síðustu metrunum. Ég vona bara að Oddan mín jafni sig sem að hún gerir án efa. Síðustu tveir dagarnir fóru í spreð og þá meina ég SPREÐ... Það var einn ónafngreindur aðili með í ferðinni sem fékk tvo aðra í lið með sér í robot-ryksugukaup og fengu því 5 stykki af þeim að fjúka úr búðinni Svo voru nokkur stykki af dekkjum keypt, klæðnaður fyrir nokkuð marga kroppa og svo voru jólagjafirnar keyptar í leiðinni. Það voru því nokkrir á nálum yfir yfirvigt og öðru þegar pökkunin hófst. Drengirnir í þessari ferð fengu grænt ljós til að fara á notaða-hjóla-parta-sölu-skranbæ en þar er víst himnaríki Bóbós Já, lífið er yndislegt. Þórhallur fékk líka einhver leikföng og get ég ekki annað sagt en að hann eigi eftir að eiga góðar stundir í sínum bílskúr að púsla saman ironhorsinn eða Kawann í vetur. Það er gott að eiga sér áhugamál og geta leyft sér að gleyma sér frá stund og stað. Ég vil allavega þakka ykkur, Hadda, Helenu, Oddu, Sjönu, Bóbó, Birgi og Þórhalli fyrir bestu stundir mínar sem hægt er að óska sér. Við erum öll gerð eftir eintökum Guðs með öllum okkar kostum og göllum. Takk fyrir mig. Þið eruð frábær, eitt og öll Kv, Perla.
»
11.10.2007 12:34:04 / perla265
Ég óska ykkur góðra ferða til usa og ég vona að þið skemmtið ykkur vel. Passið ykkur bara á eyðsluklóarskrattanum en hann leynist helst í fatabúðum, skóbúðum, snyrtivöruverslunum og strákabúðum  Hlakka annars til að sjá nýjar fregnir af ykkur og ég vona að þið hafið það se, allra best.
»
08.10.2007 15:27:17 / perla265
Þá er óvissuferðin búin og ný vinnuvika tekin við. Að vísu átti ég bara fri í gær, sunnudag og tók ég henni fagnandi. Bakið er búið að vera að hrjá mig í nokkra daga og er engum um að kenna nema sjálfri mér. Ég beygi mig vitlaust, sitt í sófanum þegar ég er að læra sem er MJÖG slæmt og til að kóróna þetta allt þá vinn ég á vinnustað sem notar eldgömlu aðferðirnar, s.s, fiskinet fyrir plastflöskur og áldósir, gamlan tjakk fyrir glerkörin sem geta vel slagað í 6-800kg og svo er það bara handaflið þegar þvottavélunum er hent eða ísskápum. Þannig að þú kannski sérð það og skilur hvers vegna ég er á kvartinu núna  En það skín samt sól í heiði  Ég bíð spennt eftir að komast í frí og ætla ég að njóta hverja mínútu. Ég er aðeins farin að undirbúa mig fyrir ferðina, búin að heimsækja támínu, setja Hilmari lífsreglurnar og vinna aðeins af mér líka. Svo ætla ég að fara seinnipartinn í vikunni og kaupa mér dollara. Svo er það spurning hvort að ég láti klippa mig líka.... Hvað finnst þér?
»
04.10.2007 16:51:36 / perla265
Þá kom að því. Sorpa ætlar að fara með okkur C-starfsmennina sína í óvissuferð. Það á að mæta klukkan 13:15 í Gufunesið..... Spurning hvort að þeir ætla að henda okkur í ruslasílóið hana Lindu eða skilja okkur eftir í Heiðmörkinni með kexpakkann og eitt stykki 33cl bjór....  Það á allavega að mæta með aukabol... Ætli að það sé blautbolskeppni eða???? Dáldið skuggalegt að fara í svona ferð, vitandi ekki neitt  Ég fæ allavega ekki að sleppa þó svo að ég ætti að vera að vinna fyrir Jökulínó....
»
02.10.2007 16:00:36 / perla265
Og mér er bara farið að hlakka til. Það eru búnir að vera skrilljón fundir útaf þessari væntanlegu ferð og eftir allt þetta spjall þá er fiðringurinn farin að láta á sér kræla. Ég er búin að ákveða að versla inn einhvern helling fyrir minn einkason, Hilmar, og svo ætla ég að njóta hverrar mínútu á meðan ég verð þarna. Ferðafélagarnir verða 6 og ætlum við að hjóla þarna í 8 daga að mér skilst. Ég að vísu ætla bara að vera skrautið hans Þórhalls og skoða umhverfið, en djííí... Þetta á eftir að vera gaman. Við stelpurnar í hópnum, ég, Odda og Sjana ætlum að fara í dekur í einn dag og láta nudda á okkur tærnar. Á meðan ætla strákarnir, Þórhallur, Bóbó, Birgir og Haddi að elda dýrindis máltíð handa okkur He he he.... Nei, ætli að þeir geri ekki eitthvað annað og skemmtilegra. Svo er stefnan að skoða stóru búðirnar þarna og eyða aðeins meiri peningum.... Til þess eru þeir, er það ekki? Að öðru leiti þá gengur lífið bara stórkostlega  Ég er búin að koma Stefáni yfirmanni í ham og ætla að hafa hann í HAMI í nokkra daga. Ég er búin að vera óánægð með launaseðlana mína undanfarna mánuði og bað ég Jökul trúnó að fara í þau mál fyrir mig. Stebba til mikillar armmæðu.... En svona er þetta bara...
»
28.09.2007 10:34:50 / perla265
Loksins, loksins. Núna er hún Jóka loksins flutt. til lukku með það, mín kæra. Núna verða dropp inn fleiri þar sem þú ert núna í ALFARALEIÐ fyrir mig  Komin í Vogana. Mér finnst það bara frábært.....Gangi þér allavega vel, snúsan mín og passaðu þig á Vogadrauginum
»
28.09.2007 10:29:08 / perla265
Þá er flensa eitt búin að gera vart við sig. Fékk alveg yndislegt kvef fyrir síðustu helgi en lét mig samt ekki vanta í vinnuna alla helgina. Það var alveg dæligt að geta hóstað og hnerrað yfir viðskiptavinunum og fékk ég oft athugasemdir yfir því að vera í vinnunni svona mikið spriklandi spræk  Ég get nú ekki sagt að slappleikinn hafi verið mikill en samt.... Ég allavega fór fyrr heim á mánudeginum. Var þá komin með svona frábæran hausverk, enda ekkert skrítið kannski. Full af skít og ojbara. Ég notaði því tækifærið og reyndi að læra smá. Kom að kafla bls 30 og þá var eins og heilinn hafði fengið nóg og lokaði fyrir allt upplýsingaflæmi. Ekki gott. En núna er komin nýr dagur og önnur helgi framundan. Að sjálfsögðu vinnuhelgi, hvað annað. Og heilabúið er ennþá lokað.... Engar óþarfa upplýsingar, takk fyrir. Þú þarft ekkert að vita um "moðbásavísur, hrynjandann og allt það sem stendur í þessari íslenskubók... Við erum jú að læra kveðskap sem haldið var uppi árið 1400. Nauðsynlegt að kunna þetta á tuttugustu öldinni. Ef ég fell í prófi sem verður væntanlega í desember þá er það þessum kafla að kenna. Ég get því miður ekki kennt kettinum um allt sem miður fer...  Ég hef spurt mína vinnufélaga (líka þann sem er fæddur árið 19og þrjátíuogeitthvað  en þeir vita ekkert um svona kveðskap. Ég verð því bara að leggjast á bæn og vona að Guð opni fyrir flóðgátina svo þessar óþarfa upplýsingaflæmi komist til skila. En að öðru leiti þá líður mér bara þokkalega vel. Takk fyrir það og hilsen
»
19.09.2007 13:06:41 / perla265
»
06.09.2007 14:19:38 / perla265
Þeir leggjast misvel droparnir í okkur mannfólkið. Það sé ég vel í vinnunni minni. Það er svo sem ekki frásögu færandi að ég vinn utandyra. Nákvæm staðsetning er Sorpa á Sævarhöfðanum. Allavega þá var ég að vinna í gær. Veðrið var ekkert sérstakt en þó nokkuð þurrt. Til okkar komu 558 bílar með mis skemmtilega farma. Um hálf sjö leitið kemur hingað sendibifreið, með ýmislegt rusl samblandað. Bane tók á móti og sendir hann á fláa númer 2. Þar sem við erum fáliðuð þessa dagana var engin við fláann til að leiðbeina manngreyinu. Allavega þá tekur þessi ágæti herramaður uppá því að henda pappakössum og bókhaldsbréfum í timburgáminn.... Ég gekk að manninum og benti honum á að þetta væri timburgámur en ekki blaða eða pappagámur. Hann hnusar aðeins og segir "já, en pappi var einu sinni timbur"..... " og svo er engin hér til að segja manni til...." Ég bendi honum á að það séu allir gámar merktir hjá okkur og það hafi verið hafin leskennsla í skólum löngu fyrir mína tíð, og auk þess hefði hann vel getað gengið að okkur og spurt um aðstoð. Við það BILAST manngreyið en þar sem mér var orðið frekar heitt í hamsi þá gekk ég frá þessum manni.... Samt ekki í þeirri meiningu..... Ég óskaði eftir að Bane sjálfur mundi leiðbeina þessum manni áður en illa færi, og gerði hann það. Svo kom áfall mannsins númer tvö. Jaxlinn hann Jónas lét hann sko ekki sleppa með borgun og get ég nú kannski ekki sagt að hann hafi nokkuð reynt að komast hjá því. Allavega fékk hann reikning upp á 24,400-. Ég var því fegin þegar hliðinu var lokað og ég komin í faðm unnustans í Garðinum En þetta er ekki búið.... Núna er komin nýr fagur dagur með rigningarúða og gott gott... Þegar ég mætti til vinnu í morgun klukkan 11 þá kom annar maður fljótlega inn á eftir mér. Ég benti honum góðfúslega á að Sorpa væri lokuð en við mundum opna klukkan hálf eitt..... Við það snappar maðurinn, gargar á mig að ég sé helv fífl og hálfviti og að ég megi stikna þar sem býr..... Ég þakkaði honum fyrir fögur orð og brosti..... Er lífið ekki alveg yndislegt?
»
31.08.2007 15:32:10 / perla265
»
Síður: 1 2 3
|
|